Búslóðaflutningar innanlands
Við erum með meira en 45 ára reynslu af búslóðaflutningum og við vitum hvað krefst til að koma búslóðinni frá einum stað á annan á sem þægilegastan og öruggastan hátt.

Eigin bílar og sérhæft starfsfólk
Við erum með okkar eigin bíla sem henta vel til búslóðaflutninga og starfsmennirnir eru sérhæfðir í pökkun og flutningi á búslóðum. Starfsmennirnir okkar hafa hlotið sérstaka þjálfun til að geta framkvæmt pakkanir á öllu því sem viðkemur búslóðaflutningum, hvort sem það er pökkun á listaverkum, píanóum eða öðru slíku.
Þú velur hversu mikla þjónustu þú vilt
Viðskiptavinurinn hefur að sjálfsögðu val um það hversu mikla þjónustu hann vill fá. Við getum séð um allt, pökkun, flutning og upppökkun á nýja staðnum. Eins getur viðskiptavinurinn óskað þess að við sjáum einungis um útburð, flutning milli staða og/eða innburð á nýja staðnum. Hafðu samband til að fá verðtilboð. Vinsamlegast notaðu Reiknivélina hér að ofan til að styðjast við.
Viltu fá tilboð?
Sendu okkur upplýsingar um verkefnið og við svörum með næstu skref.
